• Heim
  • Vefverslun
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Vefverslun
  • Um okkur
  • Hafa samband
Óskalisti 0
0 Karfa (0kr.) 0
0 Shopping Cart

Engin vara í körfu.

Return To Shop
Shopping cart (0)
Samtals: 0kr.

Greiðslumáti

Valmynd
Valmynd Vöruflokkar
  • Vefverslun
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Veggfóður
  • Undirlag
  • Lím
Óskalisti 0
Skrá inn
0 Karfa (0kr.) 0
0 Shopping Cart

Engin vara í körfu.

Return To Shop
Shopping cart (0)
Samtals: 0kr.

Greiðslumáti

EINAR BEINTEINS EHF

Einar Beinteins ehf. byggir á þriggja kynslóða reynslu í veggfóðrun og dúkalögn, en afi minn, Ásgeir Valur Einarsson, hóf nám í veggfóðrun og dúkalögn hjá Sveinbirni Ögmundssyni árið 1928.

Á árunum í kringum 1930 og fram eftir öldinni var mikið veggfóðrað og oft voru veggir klæddir með hessían striga sem var strengdur á veggi horn í horn og pappír límdur yfir, en því næst var málað eða veggfóðrað yfir. Hessían striginn var mikið notaður til að klæða innveggi í timburhúsunum sem þá voru mjög algeng. Einnig eru dæmi um að hann hafi verið notaður sem klæðning yfir timburveggi í steinhúsum. Gólfefni voru undantekningalaust linoleum. Á þessum árum var ekki algengt að iðnaðarmenn hefðu bíla til afnota. Afi minn fór t.d. um bæinn á reiðhjóli með límfötuna á stýrinu og verkfærin á bögglaberanum og veggfóðraði og dúkalagði fyrir bæjarbúa.

BYGGJUM Á ÞRIGGJA KYNSLÓÐA REYNSLU Í VEGGFÓÐRUN OG DÚKALÖGN

Ég hóf svo að læra fagið árið 1977, en þar áður hafði ég unnið töluvert með skólanum, bæði með afa og pabba. Ég fékk meistararéttindi árið 1988 og hef starfað sjálfstætt síðan. Ég er þriðji ættliður í þessari iðngrein og tel mig búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á sviði gólf og veggefna.

Ég hef reynslu af gömlum og nýjum vinnuaðferðum og efnum sem spanna 76 ár í sögu veggfóðrunar og dúklagninga.

​Einar Beinteinsson
Dúklagninga- og veggfóðrarameistari

ÞJÓNUSTA SEM VIÐ VEITUM

Dúkalagningar

FÁ TILBOÐ

Teppalagnir

FÁ TILBOÐ

Veggfóðrun

FÁ TILBOÐ

Strigastrekking

FÁ TILBOÐ

Flotspörtlun

FÁ TILBOÐ
veggfodur@veggfodur.is
848-1476
Skilmálar

© 2021 Einar Beinteins ehf │ Allur réttur áskilinn